Fjarðargata 13-15, 6. hæð, 220 Hafnarfjörður // sími: 525-0900 // fax: 525-0909 // smfr@smfr.is
10.3.2010
Fréttir frá skammtímavistununni í Móaflöt
Eitt af markmiðum skammtímavistunarinnar er að tómstundir miðist við óskir, getu, aldur og þarfir barnanna. Eitt og annað er því haft fyrir stafni s.s. farið á kaffihús, bíó, sund, útivist og annað sem börnunum langar að gera. Ákveðin tómstundaþemu eru fyrir hvern mánuð og hafa sum heppnast svo vel að þau eru orðnir fastir liðir í starfinu. Að þessu sinni hófst árið með tónlistarþema þegar ungt tónlistarfólk kom í skammtímavistunina og lék fyrir börnin tónlist. Einnig var farið á frumskógartónleika í Salnum í Kópavogi. Síðan tók við leikhúsþema en börnin á Móaflöt fara að minnsta kosti á eina leiksýningu á ári. Að þessu sinni nutu börn og starfsfólk ómetanlegrar gestrisni Þjóðleikhússins sem bauð öllum á söngleikinn Oliver. Börnin skemmtu sér hið besta enda spilar tónlist stóran sess hjá þeim flestum. Næsta þema er svo hinn sívinsæli Bjarkarsalur en þar geta börnin fengið mikla útrás fyrir hreyfingu og spreytt sig á ýmsum skemmtilegum tækjum og æfingum.

Söngleikurinn Oliver
Söngleikurinn Oliver
Til baka
Laus störf
Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að starfsfólki á heimili fatlaðs fólks í Reykjanesbæ. Um er að ræða störf í vaktavinnu í mismunandi starfshlutföllum.
Skoða auglýsingu
Óskum eftir starfsfólki á hæfingarstöð í Kópavogi. Um er að ræða dagvinnu til frambúðar í starfi með einhverfum.
Skoða auglýsingu
Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að starfsfólki á heimili fatlaðs fólks og á hæfingarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða störf í vaktavinnu í mismunandi starfshlutföllum og í dagvinnu. Leitum að félagsliðum og stuðningsfulltrúum.
Skoða auglýsingu
[ Skoða öll laus störf ]