Innkoma nýliða
Í gær þann 4. febrúar var haldið námskeið á vegum SMFR fyrir nýja starfsmenn sem kallast Innkoma nýliða. Á þetta námskeið er skyldumæting fyrir alla þá sem koma til starfa hjá stofnuninni og er markmiðið að nýliðar fái yfirsýn yfir starfssemi SMFR og þá þjónustu sem þar er veitt. Það sem vakti athygli og ánægju námskeiðshaldara var að meirihluti þeirra sem sátu námskeiðið voru karlmenn. En áhersla hefur verið lögð á að fá karlmenn til starfa hjá SMFR að undanförnu enda er það í takt við jafnréttisáætlun SMFR.
Laus störf
Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að starfsfólki á heimili fatlaðs fólks í Reykjanesbæ. Um er að ræða störf í vaktavinnu í mismunandi starfshlutföllum.
Óskum eftir starfsfólki á hæfingarstöð í Kópavogi. Um er að ræða dagvinnu til frambúðar í starfi með einhverfum.
Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að starfsfólki á heimili fatlaðs fólks og á hæfingarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða störf í vaktavinnu í mismunandi starfshlutföllum og í dagvinnu. Leitum að félagsliðum og stuðningsfulltrúum.
