Nýr yfirþroskaþjálfi hjá SMFR
Berglind Ósk Guðnadóttir hefur tekið við starfi yfirþroskaþjálfa hjá SMFR í Hrauntungu. Hún hefur lokið B.A. prófi í þroskaþjálfun og hefur starfað í málaflokknum sem stuðningsfulltrúi, yfirþroskaþjálfi og einnig sem forstöðuþroskaþjálfi. Við bjóðum Berglindi velkomna og óskum henni velfarnaðar í starfi.
Laus störf
Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að starfsfólki á heimili fatlaðs fólks í Reykjanesbæ. Um er að ræða störf í vaktavinnu í mismunandi starfshlutföllum.
Óskum eftir starfsfólki á hæfingarstöð í Kópavogi. Um er að ræða dagvinnu til frambúðar í starfi með einhverfum.
Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að starfsfólki á heimili fatlaðs fólks og á hæfingarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða störf í vaktavinnu í mismunandi starfshlutföllum og í dagvinnu. Leitum að félagsliðum og stuðningsfulltrúum.
