Fjarðargata 13-15, 6. hæð, 220 Hafnarfjörður // sími: 525-0900 // fax: 525-0909 // smfr@smfr.is

Um Smfr

Hlutverk

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi vinnur að framgangi laga um málefni fatlaðra á starfssvæðinu. Hún býður fötluðu fólki margvíslega þjónustu svo sem langtímabúsetu, skammtímadvöl, hæfingu og starfsþjálfun. Þessi fjölbreytta þjónusta styrkir möguleika fatlaðs fólks til aukinnar sjálfsbjargar og virkari samfélagsþátttöku. Svæðisskrifstofan annast einnig víðtæka upplýsingamiðlun og ráðgjöf til fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra.

Hverjir nota þjónustuna?

Í sveitarfélögunum tólf á Reykjanessvæði eru rúmlega tvö þúsund manns á örorkuskrá. Þeir sem sækja þjónustu til Svæðisskrifstofu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra þurfa að vera metnir til örorku til lengri eða skemmri tíma. Á skrá hjá Svæðisskrifstofu eru um tólf hundruð einstaklingar með fötlun sem notið hafa og njóta þjónustu af einu eða öðru tagi. Verulegur hluti þessa hóps fær reglulega þjónustu. Þeir sem fá mesta þjónustu búa á heimilum, eru í daglegri iðju á hæfingarstöðvum, á starfsþjálfunarstað eða dvelja reglulega í skammtímavistun. Stór hópur fatlaðs fólks og aðstandenda á margvísleg erindi við Svæðisskrifstofu og sækir þangað þjónustu og ráðgjöf af ýmsu tagi.

Starfssvæði

Starfssvæði Svæðisskrifstofunnar eru sveitarfélög sem áður tilheyrðu Reykjaneskjördæmi: Garðabær, Grindavík, Hafnarfjörður, Kjósarhreppur, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjanesbær, Sandgerði, Seltjarnarnes, sveitarfélagið Álftanes, sveitarfélagið Garður og sveitarfélagið Vogar.

Aðsetur