Starfsemi
Svæðisskrifstofan leggur vaxandi áherslu á gæði þeirrar þjónustu sem hún veitir. Lykilatriði hennar er gott skipulag þar sem reynt er að tengja saman skilning og þekkingu á mismunandi þörfum fatlaðs fólks. Markmiðið er að veita samstillta þjónustu í þágu þess sem þjónustuna fær og að nýta það fjármagn sem til ráðstöfunar er á sem hagkvæmastan hátt. Vegna þessa byggir þjónustustefna skrifstofunnar á góðri samvinnu sem er grundvöllur gæða í þjónustu. Allar umsóknir um þjónustu þarf að leggja fram skriflega eða í gegnum þennan vef til Svæðisskrifstofu á sérstökum eyðublöðum. Fjallað er um umsóknirnar á þjónustuteymisfundum sem haldnir eru tvisvar í viku. Á þessum fundum er verkefnum úthlutað og ákveðinn starfsmaður gerður ábyrgur fyrir úrvinnslu hverrar umsóknar og hvenær henni skuli lokið. Þegar þörf er fyrir óskar starfsmaðurinn eftir frekari upplýsingum eða gögnum frá umsækjanda, aðstandendum hans og/eða öðrum umsagnaraðilum. Þessi starfsmaður er jafnframt tengiliður skrifstofunnar við þjónustunotandann og sér um alla þá aðstoð sem hann fær frá skrifstofunni. Tengsl af þessu tagi gera samskiptin eins einföld og aðgengileg og kostur er. Sérstök áhersla er lögð á að úrlausn mótist með góðri samvinnu tengiliðs og þjónustuþega.
