Ástríkur - Starfsmannafélag SMFR
Ástríkur - nýstofnað starfsmannafélag SMFR
Á stofnfundi starfsmannafélags SMFR þann 1. október var kynnt samkeppni um nafn á félagið. Fjölmargar tillögur bárust eða alls 67. Í morgun funduðu Gæðaráð og stjórn starfsmannafélagsins og fóru yfir tillögurnar. Margar góðar tillögur bárust en eftir kosningu fundarmanna varð nafnið Ástríkur að vali. Nafnið vísar í gildi SMFR - Árangur - Samvinna - Traust sem skammstafað er ÁST. Tveir starfsmenn komu með þessa tillögu og verður þeim veitt viðurkenning fyrir nafnið.
Lög Starfsmannafélagsins Ástríks, starfsmannafélags SMFR
1.grein
Félagið heitir Starfsmannafélagið Ástríkur. Aðsetur þess er á starfssvæði Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi (SMFR) og varnarþing þess í Hafnarfirði.2.grein
Allir starfsmenn SMFR eru félagsmenn í starfsmannafélaginu nema þeir óski eftir að vera það ekki. Hætti félagsmaður störfum hjá SMFR missir hann félagsréttindi sín frá sama tíma en láti félagsmaður af störfum sökum aldurs eða veikinda heldur hann félagsréttindum sínum.3.grein
Tilgangur félagsins er að efla félagslíf og innbyrðis kynni meðal félagsmanna. Það verði gert með skemmtiferðum, skemmtunum, heilsueflingu og hvers konar menningar- og fræðslustarfsemi sem félagsmönnum má verða til gagns og ánægju og eflir starfsanda meðal þeirra.4.grein
Stjórn félagsins, sem kosin er á aðalfundi, skipa fimm menn: Formaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnendur. Varamenn skulu vera tveir og sitja stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétti. Formaður skal kosinn sérstaklega til eins árs í senn. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir tveir í senn til tveggja ára og ganga árlega tveir úr stjórn á víxl (sjá þó bráðabirgðaákvæði). Verði sitjandi stjórnarmaður kosinn formaður skal kjósa mann til tveggja ára í hans stað. Leitast skal við að í stjórn félagsins sitji að minnsta kosti einn úr hverjum kjarna SMFR.Stjórnin skiptir með sér verkum og kýs sér varaformann, ritara og gjaldkera.
Skoðunarmenn reikninga félagsins eru tveir, kosnir á aðalfundi til eins árs í senn.
5.grein
Stjórn félagsins fer með málefni þess á milli aðalfunda og er henni heimilt að skipa menn sér til aðstoðar til starfa í þágu félagsins, til dæmis í skemmtinefndir, ferðanefndir og til annarra verkefna.6.grein
Aðalfund félagsins skal halda í janúar ár hvert. Til hans skal boða með að minnsta kosti 14 daga fyrirvara með auglýsingu á heimasíðu SMFR og tölvupósti til allra starfsstöðva stofnunarinnar. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað.7.grein
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:- Fundarsetning
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins
- Lagabreytingar
- Kosningar
- Félagsgjöld ákveðin
- Önnur mál
8.grein
Félagsmenn greiða félagsgjöld, samkvæmt ákvörðun aðalfundar. Ef verkefni félagsins hafa kostnað í för með sér skal hvert verkefni fjármagnað sérstaklega.Óheimilt er með öllu að aðrir en stjórn félagsins ráðstafi fjármunum þess. Nefndir sem starfa á vegum félagsins skuli leita eftir samþykki stjórnar félagsins til ráðstöfunar á fjármunum þess.
