Múrbrjótur 2005
Múrbrjóturinn, verðlaun Landssamtakanna Þroskahjálpar, er afhentur á alþjóðadegi fatlaðra. Múrbrjótarnir eru veittir þeim sem hafa brotið múra í réttindamálum og viðhorfum til fatlaðs fólks.
Á Alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember 2005 var Múrbrjóturinn afhentur Svæðisskrifstofu Reykjaness vegna atvinnu með stuðningi. Atvinna með stuðningi gengur út á aðstoða fatlaða við að fá störf á almennum vinnumarkaði, þjálfun og aðlögun á vinnustaðnum og stuðningi eftir þörfum. Svæðisskrifstofa Reykjaness fór að nota vinnubrögð byggð á hugmyndafræði atvinnu með stuðningi í kringum 1990 og hafa þau skilað góðum árangri. Fyrir starfsfólk sem starfar við atvinnu með stuðningi er það bæði heiður og hvatning að hljóta Múrbrjótinn.
