Fjarðargata 13-15, 6. hæð, 220 Hafnarfjörður // sími: 525-0900 // fax: 525-0909 // smfr@smfr.is

Íslensku Gæðaverðlaunin 2001

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi hlaut íslensku gæðaverðlaunin árið 2001. Gæðaverðlaunin eru samstarfsverkefni Gæðastjórnunarfélags Íslands, Alþýðusambands Íslands, Forsætisráðuneytisins, Háskóla Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Framtíðarsýnar hf., útgáfufélags Viðskiptablaðsins.

Markmið Íslensku gæðaverðlaunanna er að hvetja fyrirtæki til að beita árangursríkum aðferðum við stjórnun. Fyrirmynd Íslensku gæðaverðlaunanna eru Evrópsku gæðaverðlaunin og Bandarísku gæðaverðlaunin. Í þeim felst að fyrirtæki eru metin út frá ákveðnu líkani sem tekur til níu þátta sem koma við sögu í starfsemi og stöðu þeirra.

Allir þessir þættir er skoðaðir og metið er hvernig þeir tengjast. Skoðaðar eru þær aðferðir sem leiða til þess að fyrirtækið skilar góðum árangri en ekki tímabundnar aðstæður. Í líkaninu eru innbyggðar spurningar sem snúa að þróun einstakra árangursþátta undanfarin ár. Það er í raun verið að leita eftir rauðum þræði sem liggur í gegnum fyrirtækið og leitt hefur til góðs árangurs.

Matsferlið byggist upp á því að þátttökufyrirtæki senda skýrslu til Íslensku gæðaverðlaunanna þar sem fyrirtækið hefur lagt mat á eigin stöðu miðað við forsendur líkansins. Síðan tekur 3ja manna matsnefnd við skýrslunni og ef fyrirtækið fær góða umsögn, heimsækir nefndin fyrirtækið. Í heimsókninni er leitað staðfestingar á að efni skýrslunnar eigi við rök að styðjast, en í því sambandi ræðir matsnefndin bæði við stjórnendur og starfsmenn fyrirtækisins. Að heimsókn lokinni leggur matsnefndin síðan fyrir stjórn Íslensku gæðaverðlaunanna tillögu um framhaldið. Mikil áhersla er lögð á að matsnefndin sé á hverjum tíma skipuð sérfræðingum frá óháðum aðilum, skólum á háskólastigi, samtökum og stofnunum atvinnuveganna.

Lesa má umsögn matsnefndar á slóðinni http://www.stjornvisi.is/IGV/2001/