Fjarðargata 13-15, 6. hæð, 220 Hafnarfjörður // sími: 525-0900 // fax: 525-0909 // smfr@smfr.is

Fyrirmyndar ríkisstofnun 1998

Stofnunin var valin fyrirmyndar ríkisstofnun fyrir þjónustu, rekstur, hagræðingu og nýjungar í starfseminni 10. febrúar 1998. Viðurkenningin var veitt af nefnd sem skipuð var af Friðriki Sophussyni þáverandi fjármálaráðherra í september 1997. Sú könnun sem gerð var 1998 sýndi hagstæðar niðurstöður fyrir Svæðisskrifstofu sem er hvatning til frekari árangurs.

Viðurkenning til ríkisstofnunar sem er til fyrirmyndar í starfi sínu á rætur að rekja til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í ríkisrekstri á síðustu árum. Markvisst hefur verið unnið að því að færa vald og ábyrgð til stjórnenda ríkisstofnana og gera starfsaðstæður þeirra líkari og er í fyrirtækjum. Samhliða þessu hafa kröfur um árangur stofnana aukist sem m.a. kemur fram í samningum sem ráðuneytið hefur í auknum mæli gert við stofnanir sínar. Þar er áhersla lögð á að stofnanir setji sér skýr markmið um árangur og geri síðan grein fyrir því hvernig tekst að ná settu marki.

Í niðurstöðu nefndarinnar segir m.a. að stofnunin byggi starfsemi sína á þeirri grunnhugmynd að til þess að veita megi fötluðu fólki og aðstandendum þeirra góða þjónustu þurfi starfsmenn að vera í stakk búnir til þess að gefa af sjálfum sér. Þetta sé grundvöllur þess sem lögð er áhersla á hjá stofnuninni. Hver starfsmaður ber skilgreinda ábyrgð á þjónustu við þjónustunotendur sem byggir á metnum þörfum þeirra. Í niðurstöðu nefndarinnar kemur einnig fram að í stjórnun stofnunarinnar sé mikil áhersla lögð á altæka gæðastjórnun, rýni og úrbætur og að liðsvinna sé byggð inn í hið opna skipulag og þann metnaðarfulla menningarbrag sem tekist hafi að skapa. Markmiðasetning og eftirfylgni verkefna sé til mikillar fyrirmyndar og stofnunin nýti í senn aðferðir og hugmyndafræði úr einkarekstri og bestu fræðilegar aðferðir, kenningar og viðmið. Í nefndinni voru eftirtaldir aðilar: Páll Kr. Pálsson, formaður, Arney Einarsdóttir, Erna Gísladóttir, Kristinn Briem og Svafa Grönfeldt.

Viðurkenningarskjal