Fjarðargata 13-15, 6. hæð, 220 Hafnarfjörður // sími: 525-0900 // fax: 525-0909 // smfr@smfr.is

Þjónusta

Svæðisskrifstofa Reykjaness ber faglega ábyrgð á allri þjónustu við fatlað fólk sem veitt er á svæðinu á vegum ríkisins samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Um er að ræða þjónustu bæði á heimilum fatlaðs fólks, þjónustustofnunum fyrir fatlaða sem og stoðþjónustu. Hlutverk Svæðisskrifstofu er að vera samræmingaraðili og halda utan um þá þjónustu sem fötluðu fólki er veitt. Svæðisskrifstofa miðlar upplýsingum meðal annars um réttindi og möguleika fatlaðra til þjónustu og aðstoðar við lausn vandamála sem geta hlotist vegna fötlunar.

Svæðisskrifstofa metur þörf fyrir þjónustu í samræmi við óskir hins fatlaða og í samráði við aðstandendur og greiningaraðila. Svæðisskrifstofa stuðlar að því að veitt sé viðeigandi aðstoð og stuðningur svo sem félagsráðgjöf og sálfræðiþjónusta.

Svæðisskrifstofa er í samstarfi við ýmsar stofnanir og sveitarfélög á starfssvæðinu. Á þessu sviði vinnur Svæðisskrifstofa með stofnunum í samfélagslegri þjónustu svo sem félagsþjónustu, auk þess starfar Svæðisskrifstofa í samráði við fræðslu- og heilbrigðisyfirvöld. Svæðisskrifstofa er einnig í samstarfi við aðrar svæðisskrifstofur á landinu, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og ýmis hagsmunasamtök fatlaðra.

Hér er að finna upplýsingar um þjónustu sem Svæðisskrifstofa kemur að, annars vegar þjónustu við börn yngri en 18 ára og og hins vegar þjónustu við fullorðið fólk 18 ára og eldra.