Fjarðargata 13-15, 6. hæð, 220 Hafnarfjörður // sími: 525-0900 // fax: 525-0909 // smfr@smfr.is
5.2.2010
Í gær þann 4. febrúar var haldið námskeið á vegum SMFR fyrir nýja starfsmenn sem kallast Innkoma nýliða. Á þetta námskeið er skyldumæting fyrir alla þá sem koma til starfa hjá stofnuninni og er markmiðið að nýliðar fái yfirsýn yfir starfssemi SMFR og þá þjónustu sem þar er veitt. Það sem vakti athygli og ánægju námskeiðshaldara var að meirihluti þeirra sem sátu námskeiðið voru karlmenn. En ... [Meira]
28.1.2010
Berglind Ósk Guðnadóttir hefur tekið við starfi yfirþroskaþjálfa hjá SMFR í Hrauntungu. Hún hefur lokið B.A. prófi í þroskaþjálfun og hefur starfað í málaflokknum sem stuðningsfulltrúi, yfirþroskaþjálfi og einnig sem forstöðuþroskaþjálfi. Við bjóðum Berglindi velkomna og óskum henni velfarnaðar í starfi.
27.1.2010
Árshátíð Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi verður haldin á Suðurnesjum laugardaginn 20. mars. 2010. Takið daginn frá! Er kaninn örugglega farinn af landi brott? Það kemur í ljós þetta kvöld. Fjölmennum suður með sjó. Árshátíðarnefndin verður skipuð einvala liði frá Suðurnesjum og verður dagskráin og þema hátíðarinnar auglýst síðar.

Stjórn Ástríks.
[Eldri fréttir]